Velkomin á síðuna mína

11.06.2008 09:12:25 / spgolf

Nýtt blogg

Góðan daginn.  Nú hef ég byrjað að blogga á vefsíðu víkurfrétta.  Þar mun ég reyna að skrifa reglulega um golf, og eins mun ég svara spurningum varðandi golf.  Slóðin er                http://spgolf.vikurfrettir.is                            Kíkið á þetta....ný færsla frá síðasta móti og verið endilega dugleg að kommenta...þá er gaman að skrifa meira...kveðja...SP

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 22:46:17 / spgolf

æfingahlutfall

Góða kvöldið og afsakið hvað ég skrifa sjaldan núna.....það lagast vonandi.  Ég var að spá í að svara hhhhmmm, sem er sá eini sem hefur komið með hugmynd af viðfangsefni.

Ég segi að stutta spilið, sem er innan við 100 metra, sé það sem öllu skiptir.  Ég reyni að hafa æfingarnar 30% í 100 m. og uppúr og 70% í innan við 100 metra.  Ef þú ert öruggur innan við 100 metra geturu alltaf skorað vel, þó svo að slátturinn sé ekki góður.  Ef slátturinn er svo góður, þá ertu kominn með súper hring.

Fyrir mig er það mjög mikilvægt að vera góður innan við 100 metra.  Það eru mjög margar par 4 holur þar sem innáhöggið er innan við 100 metra.  Ef ég kemst ekki inná par 5 holur í 2 höggum, eru eftir innan við 100 metrar.  Ef dræv endar í háu grasi eða útí skógi, getur maður oftast komið sér inná braut og inn fyrir 100 metra.  Þetta eru bara nokkur dæmi þar sem gott er að vera með stutta spilið á hreinu.

Það segir sig líka sjálft að ef maður setur wedge höggin nálægt, þá púttar maður ekki eins oft.  Mín ráðlegging er að æfa 25-100 metra og pútt meira en önnur högg.  Ég skora einnig á að skoða hversu nálægt þið eruð að setja wedge höggin ykkar áður en þið dæmið ykkur léleg að pútta og kaupið nýjan pútter.  kylfingur sem setur högg innan við 100 metra langt frá holunni á mjög erfitt með að vera með fá pútt að meðaltali.

Æfingar hjá mér hafa ekki verið miklar þar sem ég er að vinna mjög mikið þessa dagana.  Vonandi get ég minkað við mig eftir áramót og farið að einbeita mér meira að golfinu.  ég myndi auðvitað æfa miklu meira ef ég hefði meira fjármagn í golfið, en það er í vinnslu.

                                                                                Kveðja...SP

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 20:57:36 / spgolf

Næstu mánuðir

Síðustu vikur hafa verið frekar rólegar.  Ég tók mér síðbúið sumarfrí eftir Qualifying.  16. okt. fór ég svo til Tyrklands sem fararstjóri í golfferð hjá Úrval Útsýn.  Ferðin gekk mjög vel og fólk skemmti sér konunglega á flottum völlum og alflottasta hóteli sem ég hef verið á.  Heimferðin var eftirminnileg.  Lendingin í Keflavík var mjög harkaleg og endaði með útafkeyrslu á brautarenda.  Allt fór vel og engin meiddist að ég held.

Framundan er líkamsþjálfun.  Ég vil bæta úthald og styrk í efri hluta líkamans.  Þetta verður unnið í samræmi við Elías í Toppformi í Mosó.  Einnig eru nokkur atriði varðandi andlega þáttinn sem ég vil bæta fyrir næsta tímabil.  Ég og Jóhann Ingi höfum hist og stefnan er tekin á að vinna með honum áfram.  Jóhann Ingi er mjög fær maður og ég er viss um að hann geti hjálpað mér mikið.

Golfæfingarnar byrja 15. nóvember hjá mér og verður fyrst um sinn létt og farið yfir síðasta tímabil í tölum.  Í framhaldi af því verða teknar ákvarðanir hvort veturinn verði nýttur í tæknibreytingar eða ekki.  Ég ætla að reyna að koma með fróðleiksmola annað slagið um golf.  Ef það eru einhver atriði sem þið viljið mína skoðun á, endilega sendið mér línu hérna og vonandi get ég hjálpað eitthvað :)

                                                                                    Kveðja...SP


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 21:33:45 / spgolf

Styrktarmót

Í gær var haldið styrktarmót fyrir mig, Magga Lár og Heiðar.  Þátttakan var hreint með ólíkindum.  Það mættu um 140 manns og spiluðu í mótinu.  Spilaðar voru 14 holur, 9 á gamla vellinum og 5 á nýja partinum.  Það var almennt álit manna að nýju holurnar lofi mjög góðu og er ég sannfærður um að þetta verði mjög flott hjá okkur eftir 2-3 ár.

Ég vil koma fram þakklæti til allra sem komu og spiluðu í mótinu í gær.  Einnig vil ég þakka klúbbnum fyrir að lána okkur völlinn og sjá um að auglýsa mótið.  Síðast en ekki síst vil ég þakka stuðningsaðilum fyrir að gefa vegleg verðlaun í mótið.

                                                                          Kveðja...SP


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 11:05:07 / spgolf

BUID!!!!

Dagurinn i dag var ekki godur.  Var i nokkud godum malum tegar eg kom a 12. holu.  Tha slo eg ut og fekk double bogey.  Eg spiladi 2 yfir og tad er nokkud ljost ad eg spila ekki a evroputurnum a naesta ari.

Nu tarf madur ad setjast nidur med fjolskyldunni og studningsadilum og raeda naesta ar.  Tad er ljost ad tad er ekki haegt ad gera tetta ut ad heiman, tannig ad annadhvort er ad flytja erlendis eda snua ser alfarid ad golfkennslu..........

                                                           kv...SP:frown:


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 16:55:01 / spgolf

26. sæti

Jæja, þá eru allir komnir inn í dag. Ég var nokkuð hissa á að detta ekki neðar en í 26 sæti. Það er ljóst að á morgun verður sett í gírinn. Það dugar ekkert minna en að vera undir pari, helst 2 eða meira....jæja...best að fara að hvíla sig...stór dagur á morgun!!! Kveðja..SP

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 16:10:20 / spgolf

Strögl í dag

Dagurinn í dag var erfiður.  Drævin voru hreint út sagt ekki inni.  Ég hitti 4 brautir af 14, en með baráttu tókst mér að halda skorinu einungis 1 yfir, eða 73.  Ég fór og æfði svolítið eftir hringinn og náði að laga drævin.  Það má reikna með að ég þurfi 2 undir á morgun til að vera öruggur áfram.  Það kemur ekkert annað til greina en að spila áfram með sama leikskipulagi og vera undir pari og KOMAST ÁFRAM :D

                                                                        Kveðja...SP

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 14:26:20 / spgolf

10. sæti...helmingur kominn inn

Jæja,þá er maður búinn að æfa vel eftir hringinn.....náði að laga það sem hefði mátt vera betra í dag og vonandi skilar það sér á morgun.  Ég var að kíkja á töfluna rétt áðan og ég og Heiðar erum í 10-12 sæti þegar helmingurinn hefur lokið leik.  Vonandi endar maður daginn í um 20. sæti.  Það fara 26 spilara áfram héðan, þannig að maður þarf að sjálfsögðu að halda áfram og ekki gefa tommu eftir. :klikk:

                                                                          Kveðja...SP


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 11:12:29 / spgolf

2 dagar bunir

Godan daginn.  Eg spiladi nokkud solid i gaer, eda a parinu og var i 40. saeti eftir dag 1.  Tad var meiri vindur i dag og eg var svipadur og i gaer, en var ad chippa betur.  Eg spiladi a 70, eda 2 undir og er eg nokkud viss um ad tetta skor liftir mer upp um nokkur saeti.  Eg er mjog sattur i heildina nuina tegar motid er halfnad.  Tad eru nokkur atridi sem maettu vera betri og eg mun vinna i teim atridum i dag.

                                                                               Kvedja i bili...SP


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 14:24:43 / spgolf

Qualifying

Tha er eg kominn til Fleesensee i Tyskalandi.  Var ad spila vollinn og hann er mjog flottur.  Hann er ekkert mjog trongur, en tad eru lumsk votn og O.B. her og tar.  Madur tarf ad vera  nokkud beinn herna, en oft er madur ekkert i mjog slaemum malum ef madur rett missir brautirnar.  Grinin eru god og vonandi eykst hradinn tegar motid nalgast.  Eg var ad gera allt nokkud vel i dag, en er ad fara ad finpussa 55-70 metrana og 100-115 m hoggin.

Eg er mjog bjartsynn fyrir motid, og adalmarkmidid er ad halda sig vid akvedid leikskipulag....NO MATTER WHAT.  Eg laerdi eitt i gaer a leidinni hingad.  Eg tafdist um ruma 2 tima vegna umferdar i kringum Berlin og vegna slyss.  Eg aetladi eitthvad ad fara ad pirra mig a thvi...en hugsadi svo, hvernig aetlaru ad hondla double-bogey ef thu getur ekki saett tig vid umferdarteppu:D  tetta kennir manni ad taka ovaentum uppakomum med jafnadargedi, sama hvort tad er a vellinum eda annarstadar.  Tad er fin aefing ad vera sallarolegur i umferdinni, sama a hverju dynur.

 Jaeja, best ad fara ut ad aefa...ekki verdur madur betri vid ad pikka a lyklabord. :haha:

                                                                               Kvedja....SP


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 21:49:30 / spgolf

Holukeppni...dagur 2.

Góða kvöldið.  Dagur 2 í mótinu var ekki nógu góður.  Ég vann að vísu fyrri leikinn á 17. holu, en var ekki að spila sannfærandi....en sigur er alltaf sigur.  Eftir hádegi, í 8 manna úrslitum, spilaði ég á móti félsga mínum úr GKJ, Kristjáni Þór Einarssyni.  Leikurinn var jafn fyrstu holurnar, en svo hrundu upphafshöggin hjá mér.  Ég týndi 4 boltum á holum 3-6 og var allt í einu kominn 4 niður.  Þetta var sjokk og var ég nokkrar holur að ná mér eftir þetta.  Hann hélt forskotinu og bætti einni holu við og átti 5 holur þegar 5 holur voru eftir.  Þá fóru púttin allt í einu að detta hjá mér og Kristján gaf aðeins eftir á sama tíma.  Ég vann 4 í röð og komst á 18. holu.  Á 18 teig gerði ég hrikalega dýr mistök...ÉG HÉLT MIG EKKI VIÐ ÁKVEÐIÐ LEIKSKIPULAG...var búinn að ákveða að taka 3 tré ef ég færi á 18. holu í mótinu.  Ég tók dræverinn og ýtti honum út til hægri...og viti menn, hann týndist!!!!!!

Þar með var leikurinn tapaður.....og ég tapaði honum meðal annars á því að fara ekki eftir leikskipulagi!!!!!  Þetta eru mistök sem ég skal aldrei gera aftur. Svona mistök gætu kostað mann sæti á evrópsku mótaröðinni....þetta gerist ekki aftur...oft þarf maður að skjóta sig í fótinn til að læra, því miður.

Framundan er stig 1 í úrtökumótum fyrir evrópsku mótaröðina.  Ég er á smávægilegum sveifluleiðréttingum og eru þær að virka vel.  það verður æft stíft næstu viku.  Ég fer út 5 dögum fyrir mótið því grínin hérna heima eru ekki sambærileg við grínin úti.

                                                                         kveðja...SP


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 21:43:16 / spgolf

Holukeppni...dagur 1

Góða kvöldið.  Ég byrjaði að spila á móti Steini Baugi Gunnarssyni úr NK.  Ég spilaði nokkuð vel á móti honum og gerði lítið um mistök.  Steinn átti ekki góðan dag, enda vann ég hann 7/6.

Eftir hádegi spilaði ég á móti Davíð Jónssyni úr GS.  Aftur spilaði ég öruggt og gott golf og púttaði sérstaklega vel.  Ég náði fljótt forskoti sem var svo orðið 4 holur eftir 9.  Davíð klóraði aðeins í bakkann á fyrstu holunum á seinni 9.  Hann komst aldrei nær en 2 holur og svo fékk ég birdie á 14. og 15. og kláraði leikinn  4/3

Í fyrramálið verða svo 16 manna úrslit og 8 manna eftir hádegi. 8)  kveðja...SP


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 13:07:44 / spgolf

Vallarmet í Mosó

Góðan dag.  Ég hef verið að æfa töluvert síðan sveitakeppninni lauk.  Í gær spilaði ég svo í Mosó í móti hjá Stullunum.  Þetta var einn besti slátturhringur sem ég hef átt.  Ég spilaði 8 undir, eða á 64 höggum.  Ef allt hefði gengið upp hefði þetta hæglega getað orðið 59 hringur, því ég nýtti ekki 6 færi sem voru innan við 3 metra.  Annars voru púttin nokkuð góð.  Gaman að fá svona hring og nú er ekkert því til fyrirstöðu að skila svona hringjum í stærri mótum. 

Framundan er Íslandsmót í holukeppni, sem hefst á föstudag og er spilað á Urriðavelli hjá GO.  Þetta er eini stóri titillinn sem ég hef ekki unnið hérna heima og ég legg mikla áherslu á að ná honum í safnið fyrr eða síðar.  Ég hlakka mikið til mótsins og gaman verður að hefna sín á vellinum eftir landsmótið í fyrra :-)

                                                                              kveðja..SP


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 19:05:57 / spgolf

Sveitakeppni

Við í GKJ fórum í sveitakeppnina um síðustu helgi.  Við spiluðum 5 leiki og unnum 4 af þeim.  Eini leikurinn sem við töpuðum var á móti GK.  Þann leik vorum við með í höndunum og spiluðum þetta frá okkur á síðustu holunum...mjög svekkjandi og sárt að tapa svona leik.  Ég vann sjálfur 4 af 5 leikjum.  Ég var kominn með 23 sigurleiki í röð í sveitakeppnum þegar kom að tapi.  Það er alltaf sárt að tapa, en maður þarf að læra að taka ósigri eins og hinu.  Stemmingin í hópnum hrundi eftir tapleikinn.  Við erum allir sammála um að þessa tilfinningu viljum við ekki upplifa aftur, þannig að við mætum geðveikir til leiks að ári og ætlum okkur að ná í titilinn aftur.

Við unnum svo leikinn um 3. sætið, þannig að það var niðurstaðan.  Þetta er óásættanlegt, en samt ekkert til að skamma sín yfir :-)

                                                                           Kveðja..SP


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 15:43:10 / spgolf

Sigur í Shoot-out

Góðan daginn.  Ég kom heim af Norðurlandamótinu og fór beint í shoot out keppnina á Nesinu.  LOKSINS náði ég að vinna þetta mót eftir margar tilraunir.  Þetta var mjög gaman og gott að koma heim og vinna mót og fá sjálfstraustið í lag aftur.  Ég var að slá mjög vel á Nesinu, sérstaklega með járnunum.  Ég spilaði 18 holur og var með 8 birdie og eitt bogey. Nesið er frekar léttur völlur, en það er samt gott fyrir sjálfstraustið  að spila 7 undir þó svo að það sé á léttum velli.

Framundan er sveitakeppnin í Vestmanneyjum.  Þar höfum við Kjalarmenn titil að sækja og ætlum okkkur ekki að láta hann fara á eitthvað flakk :-) Við erum liðið sem allir vilja vinna og því þarf 100% samstillt og einbeitt lið til að vinna þetta mót.  Við Kjalarmenn höfum að mínu mati allt til þess að vinna þetta mót, en það gerist eingöngu í mörgum litlum skrefum.

                                                                    Kveðja í bili..SP


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
RSS tengill